Teya Iceland Posagreiðslur Fyrstu skrefin Fyrstu skrefin með Teya posann Uppfærð Febrúar 21, 2025 11:36 Velkomin til Teya! Til að aðstoða þig við að setja upp posann þinn, höfum við sett saman leiðbeiningar sem að þú getur fylgt! Hvað fylgir posanum? Athugaðu hvort kassinn þinn inniheldur: Posa Hleðslutæki og hleðsludokku. Auka posarúllu Kveikja á posanum Ræsitakka er að finna vinstamegin. Haltu takkanum inni í nokkrar sekúndur til að kveikja á posanum Þegar að kveikt hefur verið á posanum, smelltu á Byrja til að hefja uppsetningu Ræsitaka er að finna hægra megin. Haltu takkanum inni í nokkrar sekúndur til að kveikja eða slökkva á posanum. Ef posinn byrjar að hlaða niður hugbúnaði bíddu í nokkrar mínútur þar til því er lokið. Þegar að kveikt hefur verið á posanum, smelltu á Byrja til að hefja uppsetningu. Setja upp posann Að velja tungumál og nettengingu Eftir að þú hefur kveikt á posanum er fyrsta skrefið að velja tungumál sem þú vilt að posinn þinn sé stilltur á. Þú getur breytt tungumálinu seinna ef þú þarft að breyta því með því að fara í posastillingar. Til að posinn geti tekið á móti greiðslum þarf hann að vera með nettengingu. Posinn kemur með SIM korti og er sjálfkrafa tengdur við frítt farsímanet. Það fer eftir staðsetningu þinni og aðstæðum, tækið getur tengst 4G, 3G eða 2G farsímatengingu. Við mælum með að tengja posann þinn við WiFi net. Það tryggir stöðugri tengingu sem gerir þér kleift að halda áfram að vinna úr greiðslum jafnvel á annasömum tímum. Mikilvægt: vegna hugsanlegra öryggisvandamála skaltu forðast að tengja posann við almennings WiFi net. Mikil hætta er á að greiðslum sé hafnað eða seinkað á almennu neti. Að tengja posann við Teya samninginn þinn Þegar þú hefur tengt posann við netið, er næsta skref að tengja posann þinn við Teya aðganginn þinn. Það eru tveir valmöguleikar við að tengja posann: Skanna QR kóðann sem birtist á skjánum með símanum þínum Fara inná id.teya.com/verify í tölvu eða öðru tæki. Á síðunni setur þú inn kóðann sem birtist á skjánum á posanum þínum. Ef þú skannaðir QR kóðann, ætti kóðinn sjálfkrafa að koma upp. Smelltu á staðfesta til að fara áfram í næsta skref. Næst, skráðu þig inn á Teya aðganginn þinn. Ef þú hefur ekki ennþá sett upp aðganginn með skráðu netfangi, verður þú beðinn um að setja upp aðgang. ⚠️Af öryggisástæðum, ef þú ert starfsmaður en ekki eigandi, þarf eigandi rekstursins annaðhvort að: Setja þig upp sem “starfsmann” í Teya Appinu - Sjá hér. Eigandi fer inná slóðina (id.teya.com/verify), skráir sig inn og setur inn kóðann sem kemur fram á posanum. Þetta skref getur átt sér stað hvaðan sem er, eina sem þarf er kóðinn sem birtist á posanum. Veldu og staðfestu samning Ef það eru fleiri en einn samningur skráður á þig, þarft þú að velja hvaða samningur á að vera tengdur við posann sem þú ert að setja upp. Staðfestu að þetta sé réttur samningur sem þú ert að tengja posann við. Eftir að samningur hefur verið staðfestur er ekki hægt að breyta um samning, svo mikilvægt að fara vel yfir áður en þetta skref er staðfest. Setja upp PIN-númer Eftir að þú hefur staðfest réttan samning, þarft þú að setja upp PIN-númer fyrir posann. PIN-númerið er notað þegar þarf að gera endurgreiðslur, skoða söluyfirlit og breyta stillingum. Þú þarft að samþykkja PIN-númerið með því að setja það inn aftur. Grunnstillingar og nafn posa Í lokin getur þú stillt grunnstillingar posans, eins og að virkja þjórfé og kvittun söluaðila. Hér getur þú einnig gefið posanum þínum nafn svo að það sé auðveldara að aðgreina posana þína ef þú ert með fleiri en einn posa. Posinn þinn mun sjálfkrafa fá táknmynd/emoji. Uppsetning er klár og þú getur byrjað að taka við færslum! Eftir að uppsetning er klár, færist þú yfir á aðalvalmynd posans. Hér getur þú tekið á móti færslum, notað reiknivélina og fengið upplýsingar um mikilvæg skilaboð. Til að taka á móti fyrstu færslunni þinni, sláðu inn upphæð og notaðu eftirfarandi greiðsluleið: Snertilaust Kort: Kortið eða sími er sett upp við efri-hluta posans. Kort: Settu kortið inn í neðri hluta posans eða á hægri hlið posans (fer eftir tegund posa) Kort með segulrönd: Renndu kortinu frá vinstri til hægri á efri hluta posans. Að setja posarúllu í Gakktu úr skugga um að posarúllan sé rétt sett í og tilbúin til prentunar. Endinn á posarúllunni ætti að vera fyrir utan hólfið þegar hlífinni er lokað. Posinn getur prentað: Sjálfvirka prentun kvittun söluaðila.* Kvittanir fyrir viðskiptavini. Söluyfirlit.* Þú getur auðveldlega sett þetta upp með því að velja Valmynd > Greiðslustillingar > Kvittun söluaðila. Að hlaða posann og athuga rafhlöðustöðu Hægt er að hlaða posann annað hvort með því að nota hleðsludokku eða með því að stinga hleðslusnúru í tengið á hlið posans og tengja snúruna við rafmagnsinnstungu. Ef þú notar hleðsludokku skaltu stinga snúrunni beint í hleðsludokkuna. Posinn er sendur til þín með fullhlaðinni rafhlöðu, en afhendingarferlið getur haft áhrif á þetta. Gakktu úr skugga um að athuga stöðu rafhlöðunnar í efra hægra horninu á skjánum. Ef rafhlaðan er rauð verður þú að hlaða posann áður en haldið er áfram. Tengdu posann við hleðslutækið og rafmagnsinnstungu. Hleðslutáknið hverfur þegar rafhlaðan er hlaðin yfir 80%. Mikilvægt: Við mælum með að posinn sé alltaf með yfir 15% rafhlöðustöðu svo að virkni posans sé sem allra best. Prentun virkar aðeins ef posinn er með yfir 15% stöðu. Var þessi grein gagnleg? Já Nei 0 af 0 fannst þessi grein gagnleg