Símgreiðslur (MOTO)

  • Uppfærð

Símgreiðslur (MOTO) gera þér kleift að taka á móti færslum með því að slá inn kortaupplýsingar beint inn í posann þinn. Ef korthafi er ekki á staðnum er hægt að taka við símgreiðslu, en mikilvægt er að framkvæma greiðsluna rétt til að vernda reksturinn þinn. Það fer eftir viðskiptasögu og seljandaflokkun hvort þú getir notfært þér símgreiðslur. 

Hvenær skal nota símgreiðslur

Við mælum alltaf með að nota greiðslubeiðnir þegar korthafi er ekki á staðnum frekar en símgreiðslu. Greiðslubeiðnir veita meiri öryggi þar sem korthafi slær sjálfur inn kortaupplýsingarnar sínar á öruggri greiðslusíðu og auðkennir færsluna sína. 

Notaðu símgreiðslur aðeins ef eitthvað af eftirfarandi á við:

  • Viðskiptavinurinn hefur ekki nettengingu.
  • Tilraun með greiðslubeiðnir hefur mistekist, en þú treystir viðskiptavininum.
  • Fyrirtækið þitt bíður ekki upp á aðrar greiðsluleiðir.

Taka við símgreiðslu

  1. Veldu Símgreiðslur í valmyndinni.
  2. Sláðu inn upphæðina og Áfram.
  3. Biddu viðskiptavininn um eftirfarandi upplýsingar sem má finna á greiðslukorti:
    • Kortanúmer
    • Gildistími
    • CVV/CVC (þrír tölustafir á bakhlið kortsins)
  4. Veldu Áfram til að staðfesta.

Öryggi og lágmarka áhættu

Símgreiðslur nota ekki PIN eða 3D Secure (tveggja þátta) staðfestingu, þannig að hættan á endurkröfu er meiri. Fylgdu þessum skrefum til að vernda reksturinn þinn og meðhöndla gögn á öruggan hátt.

Áður en þú vinnur úr greiðslunni

  • Staðfestu auðkenni viðskiptavinar: Skráðu fullt nafn, símanúmer og netfang viðskiptavinarins.
  • Athugaðu misræmi: Ekki halda áfram ef viðskiptavinur virðist flýta sér, forðast spurningar eða reynir að skipta stórri pöntun á mörg kort.
  • Staðfestu við afhendingu: Afhentu vörur aðeins á reikningsheimilisfang. Ef viðskiptavinurinn sækir pöntunina, athugaðu skilríki og aðrar upplýsingar áður en vara/þjónusta er afhend.

Meðhöndlun kortagagna 

Til að uppfylla PCI DSS kröfur:

  • Sláðu upplýsingar beint inn
  • Ekki skrifa upplýsingarnar niður
  • Ekki geyma gögn

Gjöld og uppgjör

Kostnaður: Aukagjöld geta átt við. 

Uppjörsskýrsla býður upp á einfalt yfirlit með heildarupphæð bunka, fjölda færslna og endurgreiðslna og samtals greitt uppgjör.

Vantar þér aðstoð?

Hafðu samband við viðskiptaver Teya ef þú hefur frekari spurningar um símgreiðslur.

Var þessi grein gagnleg?

0 af 0 fannst þessi grein gagnleg