Notendastýring og leyfi

  • Uppfærð

Á þjónustuvefnum og í Teya appinu getur þú stjórnað aðgangi notenda. Þú getur bætt við notendum til að fá aðgang að upplýsingum reksturs. Hver notandi fær sinn eigin aðgang og getur fengið mismunandi leyfi. Þú sem eigandi getur einnig uppfært leyfi eða fjarlægt aðgang hvenær sem er. Þetta gerir þér kleift að stýra rekstrinum eins og þér hentar. 

Hlutverk

Prókúruhafi

Prókúruhafi er forsvarsaðili reksturs og hefur fullan aðgang. 

Hefur aðgang aðHefur ekki aðgang að
  • Öllum aðgerðum.
  • Skoða öll gögn vegna sölu, færslna, uppgjöra og reikninga.
  • Veita eða fjarlægja aðganga fyrir aðra notendur.
  • Bæta við öðrum prókúruhafa.

Stjórnandi

Stjórnendur geta nálgast allar söluupplýsingar og aðgerðir.

Hefur aðgang að Hefur ekki aðgang að 
  • Skoða og sækja öll gögn vegna sölu, færslna, uppgjöra og reikninga.
  • Veita eða fjarlægja aðganga fyrir aðra notendur.
  • Framkvæma endurgreiðslur.
  • Breyta eða eyða aðgangi prókúruhafa.

Bókari

Bókari getur skoðað og sótt sölugögn, uppgjör og reikninga með lesaðgangi.

Hefur aðgang aðHefur ekki aðgang að
  • Skoða og sækja gögn reksturs. 
  • Uppgjörsyfirlitum og reikningum. 
  • Notendaumsjón.
  • Sölusíðunni
  • Nota Tap to Pay eða stofna Greiðslubeiðnir.
  • Framkvæma endurgreiðslur.

Starfsmaður 

Starfsmaður getur tekið á móti greiðslum og skoðað færslur en getur ekki stjórnað öðrum notendum eða framkvæmt mikilvægar aðgerðir eins og að endurgreiða eða fengið aðgang að skýrslum.

Hefur aðgang aðHefur ekki aðgang að
  • Öllum samningum.
  • Sölusíðunni.
  • Nota Tap to Pay og stofna Greiðslubeiðnir.
  • Skoða heildargögn, uppgjör eða sækja skýrslur.
  • Notendaumsjón.
  • Skoða upplýsingar á bakvið færslur. 
  • Framkvæma endurgreiðslur. 

Stjórnaðu teyminu þínu

Hægt er að bæta við og fjarlægja notanda í Teya appinu eða á þjónustuvefnum undir Notendur og leyfi.

Bæta við notanda

  1. Opnaðu Stillingar.
  2. Veldu Notendur og leyfi til að skoða núverandi hlutverk.
  3. Smelltu á + Bæta við notanda og fylltu út í reitina (nafn, netfang og hlutverk).
  4. Þegar notanda hefur verið bætt við fær viðkomandi tölvupóst til að ljúka skráningu og búa til eigið Teya ID.

Fjarlægja notanda

Í gegnum Teya Appið.
  1. Opnaðu Teya Appið
  2. Smelltu á meira í hægra horninu.
  3. Veldu Notendur og leyfi undir Stillingar.
  4. Finndu notandann sem þú vilt fjarlægja.
Á þjónustuvefnum.
  1. Skráðu þig inn á þjónustuvefinn.
  2. Smelltu á Stillingar.
  3. Veldu Notendur og leyfi.
  4. Finndu notandann sem þú vilt fjarlægja.
  5. Smelltu á punktana þrjá við hliðina á hlutverkinu þeirra og fjarlægja.
 

Var þessi grein gagnleg?

0 af 0 fannst þessi grein gagnleg