Hvernig tengi ég greiðslusíðu við WooCommerce?

  • Uppfærð

Til þess að virkja viðbótina hjá WooCommerce og vera viss um að hún virki rétt þarftu að fylgja öllum eftirfarandi skrefum. 

Hvernig á að hlaða niður og setja upp WooCommerce viðbótina fyrir Teya?

1. Hlaða niður viðbótinni

Smelltu á "Dashboard" og þar skaltu færa bendilinn yfir "Plugins".
Þar koma upp tveir valmöguleikar "Installed Plugins" og "Add Plugin"
Smelltu á "Add Plugin"

1.webp

2. Hlaða upp viðbótinni

Hér hleður þú upp viðbótinni með því að smella á "Upload Plugin" takkann vinstra megin á skjánum.
Hér er slóðin á viðbótina sem þarf að bæta inn; https://update.tactica.is/?action=download&slug=teya-payments-for-woocommerce

2.webp

 

3. Veldu viðbótina

Smelltu á „Choose File“ og farðu síðan í möppuna þar sem þú geymdir .zip skrána til að velja hana. Ýttu svo á „Install Now“.

3.webp

4. Virkja viðbótina

Þegar búið er að hlaða upp viðbótinni, smelltu á "Activate Plugin" á síðunni.

4.webp

 

5. Eftir að þú hefur smellt á „Activate Plugin“ ferðu á síðu sem sýnir allar viðbætur verslunarinnar, þar á meðal þessa nýju sem þú varst að hlaða upp. Staðfestu að hún sé þar. Þegar því er lokið geturðu stillt viðbótina til að tengjast Teya-aðganginum þínum.

6. Still­ing viðbótar

Farðu í "Settings" undir "Plugins" og smelltu síðan á "Payments".

 

5.webp
7.webp

7. Þú ættir að sjá viðbótina sem eina af greiðsluleiðunum. Teya Plugin mun sýna "Action needed" þar sem hún hefur ekki enn verið tengd við Teya-verslun. Smelltu á "Complete setup" hægra megin á skjánum og þér verður beint áfram til að ljúka stillingum á Teya account.

6.webp

8. Tengdu viðbótina við þinn Teya aðgang

Þú munt lenda á þessari síðu þar sem þú skráir þig inn og tengir Teya aðganginn. Smelltu á “Connect to Teya”.

8.webp

9. Eftir að hafa smellt á “Connect to Teya” birtist þessi síða. Skráðu þig inn með netfanginu þínu og lykilorði að Teya. Ef þú ert þegar skráður inn á þjónustuvef Teya í vafranum mun þér sjálfkrafa vera beint á næstu síðu með lista yfir samninga sem þú hefur skráð hjá Teya.

9.webp

10. Á þessari síðu munt þú sjá lista yfir þá samninga sem þú hefur skráð hjá Teya. Smelltu á þann samning sem þú ert að setja viðbótina upp fyrir.

10.webp

11. Þú ættir að lenda á þessari staðfestingarsíðu eftir að hafa valið samninginn. Þetta þýðir að viðbótin þín hefur verið stillt og ætti að vera tilbúin til notkunar.

11.webp

12. Eftir að hafa smellt á ‘Close’ verður þér beint á stillingar fyrir þessa viðbót. Gakktu úr skugga um að viðbótin sé virkjuð með hakinu við ‘Enable Teya Payment’. Ef viðbótin hefur verið sett upp og stillt rétt, munt þú sjá borða sem segir: ‘Successfully connected to Teya! You can now start accepting payments.’

Þú getur einnig bætt við eða breytt merchant success email, en það eru tilkynningar sem eru sendar fyrir nýjar pantanir, ef pöntun var ógild eða misheppnuð.

12.webp

 

13. Prófaðu vefsíðuna

Farðu í netverslunina þína og prófaðu að kaupa vöru líkt og viðskiptavinur. Gakktu úr skugga um að ‘Teya Payments Gateway’ birtist á greiðslusíðunni.

Haltu síðan áfram með pöntun (veldu ódýra vöru fyrir prófið). Notaðu virkt debet- eða kreditkort til að klára greiðslu og endurgreiddu hana síðan.

 

13.webp
14.webp

 

14. Núna er Teya viðbótin rétt sett upp, þú getur fylgst með greiðslum í rauntíma á þjónustuvef Teya eða í Teya appinu.

 

Hafðu samband við okkur í tölvupósti á hjalp@teya.is ef þú lendir í einhverjum vandræðum.

Var þessi grein gagnleg?

1 af 1 fannst þessi grein gagnleg