Teya Iceland Fyrirfram fjármögnun Fyrirfram fjármögnun Fyrirfram fjármögnun Teya Uppfærð Nóvember 19, 2025 10:48 Teya, í samstarfi við Liberis, kynnir með stolti nýja fjármögnunarleið fyrir viðskiptavini Teya - Fyrirfram fjármögnun Teya. Með þessari nýju leið geta söluaðilar okkar fengið uppgjör framtíðarinnar greidd út fyrirfram, gegn fastri þóknun sem byggir á færslu- og rekstrarsögu söluaðila hjá Teya. Nánar um Fyrirfram fjármögnun Teya: Ef þú sem söluaðili uppfyllir ákveðin skilyrði kemur þú til með að fá tilboð frá okkur í tölvupósti með hlekk til að sækja um. Þegar að þú hefur sótt um þá upphæð sem þú óskar eftir innan fyrirfram gefinna marka kemur Liberis, samstarfsaðili okkar, til með að vera í sambandi við þig varðandi afgreiðslu umsóknarinnar. Til að klára umsóknina þína mun Liberis framkvæma áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu þínu. Þegar því er lokið og áreiðanleikakönnunin samþykkt munt þú fá peninginn greiddan út. Við framkvæmd áreiðanleikakönnunar mun Liberis meðal annars skoða greiðslugetu, lánshæfismat, veltu og fleira. Nei, Fyrirfram fjármögnun Teya er ekki lán. Fyrirfram fjármögnun Teya er önnur tegund fjármögnunar, sem ólíkt láni ber hvorki vexti né fasta gjalddaga á innborgunum. Já, innan fyrirfram ákveðinna marka. Þú velur hvað þú vilt fá mikla fjármögnun og hversu háa prósentu af framtíðar uppgjörum þú vilt nýta til að greiða til baka. Þessir þættir munu ákvarða þóknunina og heildarupphæðina sem kemur til endurgreiðslu. Liberis er alþjóðlegt fjármálafyrirtæki, stofnað árið 2007, með höfuðstöðvar í Bretlandi. Teya, í samstarfi við Liberis, býður þessa nýju fjármögnunarleið fyrir viðskiptavini okkar. Fyrirfram fjármögnun Teya er fyrir söluaðila Teya sem uppfylla skilyrði Liberis. Sjá Hæfnismat neðar á þessari síðu. Fjármögnun Það veltur á hversu mikil kortavelta kemur inn í gegnum posa/vefsíðu hjá þér. Liberis skoðar kortaveltu fyrirtækisins og byggir mögulega fjármögnunarupphæð m.a. á því. Nei, ekki er hægt að breyta upphæðinni eftir að þú hefur fengið Fyrirfram fjármögnun Teya. Hins vegar er mögulegt að fá viðbótar fjármögnun eftir að þú hefur greitt til baka 80% af upprunalegu fjármögnuninni. Heildarupphæðin sem þú greiðir til baka nemur sömu upphæð og þú færð greidda út í upphafi auk fastrar þóknunar sem leggst á höfuðstólinn einu sinni. Enginn annar kostnaður fylgir fjármögnuninni. Þú færð greitt innan 48 tíma eftir að umsókn þín hefur verið samþykkt. Já, þegar þú hefur greitt að minnsta kosti 80% af upprunalegu fjármögnuninni geturðu aftur sótt um viðbótar fjármögnun. Greiðslumat Eftir að þú skilar inn umsókn mun Liberis nota nokkrar leiðir til að skilja reksturinn þinn og meta greiðslugetu. Liberis skoðar m.a. lánshæfismat fyrirtækja og einstaklinga hjá lánshæfismatsfyrirtækjum. Að sækja um hjá Liberis hefur ekki áhrif á lánshæfismatið þitt. Nei, Fyrirfram fjármögnun Teya virkar ekki eins og hefðbundið lán og því þarf ekki að veðsetja eignir fyrir greiðslunni. Já, það er gerð krafa um persónulega ábyrgð ef þú ert að sækja um fyrir hönd félags sem er með rekstrarform með takmarkaðri ábyrgð, til dæmis ehf. og hf. Afborganir Já, þú getur greitt fjármögnunina upp í einni greiðslu hvenær sem er. Til þess að gera það getur þú haft samband við okkur og fengið frekari upplýsingar. Heildarkostnaður breytist ekkert þó fjármögnunin sé gerð upp fyrr. Fast prósentuhlutfall er sjálfkrafa dregið af daglegu uppgjöri kortaveltu þar til fjármögnunin hefur verið greidd upp að fullu. Það verður að greiða að minnsta kosti 3% af fjármögnuninni mánaðarlega til Liberis. Upplýsingar um frádrátt vegna greiðslna af Fyrirfram fjármögnun Teya koma fram á yfirliti kortauppgjörs. Einnig er hægt að sjá yfirlit greiðslna með því að smella Hér og skrá inn á þjónustuvefinn okkar. Já. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver Liberis í síma 800 4485. Engar áhyggjur - við rukkum einungis af kortaveltu sem á sér stað. Ef þú sérð fram á að það verði engin kortavelta í sjö daga eða meira biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband við okkur og láta vita. Eina skilyrðið er að greiða að minnsta kosti 3% lágmarksgreiðslu mánaðarlega. Ef þú nærð ekki að greiða lágmarksgreiðslu einu sinni hefur það engin áhrif. En ef þú nærð ekki lágmarkinu í 28 daga í röð verður haft samband við þig frá Liberis til að skoða hvað er hægt að gera til að aðstoða þig. Nei, á meðan að fyrirfram fjármögnunin hefur ekki verið greidd upp þarftu að halda áfram að vera í færsluhirðingu hjá Teya. Almennt er ekki leyfilegt að gera hlé á greiðslum en við biðjum þig um að hafa samband við Liberis í síma 800 4485 ef þú átt í erfiðleikum með að greiða samkvæmt áætlun. Það fer eftir viðskiptasögu þinni hjá Teya. Þú ættir að fá uppgefinn tímaramma strax í upphafi samnings en algengast er að hann sé 6-12 mánuðir. Skráningar og samskipti Veldu “Segja upp áskrift” (Unsubscribe) neðst í tölvupóstinum sem þú fékkst frá okkur varðandi Fyrirfram fjármögnun Teya. Vinsamlegast hafðu samband við Liberis í síma 800 4485. Hæfnismat Teya og Liberis meta hvort þú sért hæfur umsækjandi eftir fjölda mismunandi þátta, t.a.m. er horft til þess tíma sem þú hefur verið í færsluhirðingu hjá Teya, heildarveltu og fjölda færslna ásamt öðrum viðskiptaupplýsingum. Til viðbótar við lágmarkskröfur og skilyrði eru aðrir þættir sem gætu haft áhrif á hæfnismatið þitt og hámarks heimild á fyrirfram fjármögnunar. Þeir eru m.a.: Góð viðskiptasaga - t.a.m. að hafa verið með stöðuga veltu sýnir fram á áreiðanleika rekstursins og hefur áhrif á hæfnismat Veltuaukning fyrirtækisins hjá Teya hefur áhrif á heimildina þína fyrir fyrirfram fjármögnun. Vöxtur fyrirtækis hefur jákvæð áhrif á hæfnismat Reiknilíkanið okkar byggir að stórum hluta á kortaveltunni þinni hjá Teya. Það að flytja þjónustu um kortaveltu frá öðrum færsluhirðum til Teya og auka þar með veltuna þar, eykur líkur á að teljast sem hæfur umsækjandi. Við framkvæmum hæfnismat mánaðarlega. Ef þú ert metinn sem hæfur umsækjandi þá færðu tölvupóst frá okkur með hlekk til að sækja um. Nei, hafir þú ekki fengið tilboð frá okkur um Fyrirfram fjármögnun getur þú ekki óskað eftir því. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi hæfnismatið þitt vinsamlegast hafðu samband við Liberis í síma 800 4485. Fyrir frekari upplýsingar varðandi skilmála og persónuvernd smelltu hér. Related to Fyrirfram fjármögnun Var þessi grein gagnleg? Já Nei 0 af 0 fannst þessi grein gagnleg