Hvernig uppfæri ég rekstrarupplýsingar í Teya appinu?

  • Uppfærð

Ef þú ert skráður eigandi eða stjórnandi getur þú uppfært rekstrarupplýsingar í Teya appinu.

Hvaða upplýsingum get ég breytt?

Það er hægt að breyta fyrirtækja- og samningsupplýsingum. Það er hægt breyta eftirfarandi upplýsingum á samningum:

  • Nafn (Þetta mun einnig uppfæra nafn á kvittun)
  • Heimilisfang
  • Samskiptanetfang
  • Símanúmer

Hvernig uppfæri ég samningsupplýsingar?

  1. Opnaðu Teya appið;
  2. Skráðu þig inn með lífkenni eða PIN númeri;
  3. Opnaðu stillingar;
  4. Veldu Viðskiptaupplýsingar;
  5. Farðu neðst til þess að sjá alla samninga;
  6. Smelltu á þann samning sem þú vilt uppfæra;
  7. Smelltu á breyta hnappinn til þess að uppfæra upplýsingar;
  8. Smelltu á vista til þess að staðfesta breytingar.

Uppfæra fyrirtækjaupplýsingar

Í appinu er aðeins hægt að uppfæra skráð netfang fyrirtækis. Til þess að breyta öðrum fyrirtækjaupplýsingum þarf að hafa samband við þjónustuver Teya.

Af hverju get ég ekki uppfært bankaupplýsingar?

Breytingar á bankaupplýsingum fela í sér viðkvæmar upplýsingar. Vinsamlegast hafðu samband við Teya til þess að uppfæra bankaupplýsingar.

Var þessi grein gagnleg?

0 af 0 fannst þessi grein gagnleg