Teya Iceland Tap to Pay Tap to Pay á Android Að nota Tap to Pay á Android Uppfærð Október 22, 2025 16:27 Tap to pay er hentug og þægileg leið fyrir þig til að taka á móti greiðslum með Android snjallsímanum þínum. Tap to Pay á Android, aðgengilegt í Teya appinu, gerir þér kleift að breyta símanum þínum í posa og taka á móti snertilausum greiðslum með Apple Pay, Google Pay eða öðrum stafrænum kortum. Tap to Pay er aðgengilegt í Teya appinu. Ef þú ert ekki með appið getur þú sótt það í App Store eða Google Play Virkjaðu Tap to Pay í appinu Ef þetta er í fyrsta skipti sem þú notar Tap to Pay á Android Opnaðu Teya appið og smelltu á kortatáknið neðst á skjánum. Smelltu á Byrja. Til að halda áfram er nauðsynlegt að leyfa aðgang að staðsetningu og myndavél. Virkjaðu „Ekki trufla“-stillingu meðan á viðskiptum stendur svo að persónuleg skilaboð sjáist ekki þegar þú ert að taka við greiðslum. Tap to Pay er nú virkt - nú er kominn tími til að taka við greiðslum: Taktu prufu greiðslu með því að fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú ert búinn að taka prufu greiðslu getur þú smellt á Ljúka eða æft þig aftur. Þú getur æft þig hvenær sem þú vilt með því að smella á spurningarmerkið efst til hægri og smella á Æfðu þig núna Þú getur læst Teya appinu í greiðsluham þannig að það verði takmarkað að taka aðeins á móti greiðslum (getur þá á sama tíma ekki nálgast upplýsingar um sölu eða aðrar viðskiptaupplýsingar). Til að gera það smellir þú á opna lásinn efst til hægri á skjánum og velur Já. Þú getur alltaf slökkt á greiðsluham með því að smella aftur á lásinn. Ef þú ert nú þegar að nota Tap to Pay Opnaðu Teya Business appið. Smelltu á Selja neðst á skjánum. Þú ert núna í greiðsluham: sláðu inn upphæðina sem þú vilt rukka og taktu á móti snertilausum greiðslum! Ef þú vilt gefa öðrum starfsmönnum aðgang að Tap to Pay Fylgdu þessum skrefum ef þú vilt gefa öðrum starfsmönnum aðgang að Tap to Pay: Opnaðu Stillingar í Teya appinu. Veldu Notendur og leyfi, smelltu á bæta við notanda. Sláðu inn notendaupplýsingar (netfang, fornafn og eftirnafn) og veldu hlutverk notanda. Smelltu á Senda Boð til að bæta við nýjum notanda. Ef þú vilt gefa öðrum innan rekstursins aðgang að Tap to Pay Ef þú vilt leyfa einhverjum öðrum innan rekstursins að nota sinn eigin síma til að taka við greiðslum skaltu fyrst fylgja þessum skrefum: Farðu í Stillingar í Teya appinu. Veldu Notendur og leyfi og smelltu á + Bæta við notanda. Sláðu inn notenda upplýsingarnar (netfang, fornafn og eftirnafn) og veldu Starfsmaður sem hlutverk. Smelltu á Senda boð til að ljúka beiðni. Starfsmaður þinn mun nú geta tekið við greiðslum með Tap to Pay á Android símanum sínum. Var þessi grein gagnleg? Já Nei 0 af 0 fannst þessi grein gagnleg