Uppgjör og uppgjörstíðni

  • Uppfærð
Þegar þú skráir þig í viðskipti hjá Teya eru viðskiptaupplýsingar þínar og bankareikningur skráður í gagnagrunninn okkar og tengt við posann þinn og/eða greiðslusíðu. Greiðslur sem þú tekur á móti fara í sjálfvirka vinnslu yfir nóttina og eru greiddar inn á bankareikninginn þinn næsta virka dag. Þetta þýðir að þú færð uppgjör alla virka daga að undanskildum almennum frídögum. Við köllum þetta uppgjörstíðni, þ.e. vinnslu kortafærslna. 
 
Athugið – Þegar þú hefur lokið umsóknarferlinu og klárað Áreiðanleikakönnun (KYC) Teya mun uppgjörstíðni taka gildi fyrir fyrirtækið þitt. Greiðslur verða í biðstöðu þar til þú klárar þetta ferli.
 
Hægt er að skipta uppgjörstíðni í þrjá flokka:
 

Heimild

Þegar greiðsla með korti er framkvæmd er færslan unnin og staðfestir Teya kortaupplýsingar og athugar hvort næg innistæða sé til staðar á reikningi viðskiptavinarins.
 

Uppgjör

Ef færslan er heimiluð fer hún í uppgjörsferli þar sem fjármunir eru færðir frá banka viðskiptavinarins yfir á reikninginn þinn næsta virka dag. Þú færð því greitt á virkum dögum, frá mánudegi til föstudags. Færslur frá föstudegi, laugardegi og sunnudegi eru gerðar upp á mánudegi. Færslur á almennum frídögum eru afgreiddar næsta virka dag. Athugið - Það er áskilinn þröskuldur sem þú verður að ná til að uppgjörið sé lagt inn á bankareikninginn þinn. Þetta er kallað lágmarksupphæð uppgjörs (MPA), og það jafngildir 15 evrum í þínum gjaldmiðli. 
 

Skýrslur

Hvert uppgjör býr sjálfkrafa til tölvupóst sem inniheldur Daglega uppgjörsskýrslu. Þessi skýrsla veitir reglulega upplýsingar um uppgjörin þín og er send á netfangið sem þú skráðir fyrirtækið þitt með hjá Teya. 
Fyrri hluta næsta mánaðar færðu sjálfvirkt senda Mánaðarlega uppgjörsskýrslu, t.d. fyrir 15. ágúst færðu senda skýrslur fyrir allar færslur afgreiddar í júlí. Þessi skýrsla inniheldur ítarlega sundurliðun á öllum kortafærslum eftir mánuði.
 

Athugið – Mánaðarskýrslan inniheldur venjulega ekki síðasta dag mánaðarins, þar sem sá dagur er afgreiddur og gerður upp daginn eftir, þ.e. í næsta mánuði. Mánaðarskýrslan fer eftir uppgjörsdagsettningu en ekki færsludagsetningu.


Ef þú óskar eftir að afþakka þessar skýrslur með tölvupósti, er hægt að slökkva á þeim á þjónustuvef okkar eða í gegnum Teya appið, annars getur þú haft samband við viðskiptaver okkar.
 
 

Var þessi grein gagnleg?

0 af 0 fannst þessi grein gagnleg