Teya Iceland Þjónustuvefir Þjónustuvefur Þjónustuvefur Uppfærð Júlí 07, 2025 15:31 Þjónustuvefurinn er örugg vefsíða þar sem þú hefur aðgang að öllum helstu upplýsingum um reksturinn þinn. Þar geturðu fengið innsýn í viðskiptin þín, fylgst með sölum, skoðað færslur, séð uppgjörsskýrslur, stjórnað aðgangi notenda og uppfært rekstrarupplýsingar. Aðgangur að þjónustuvefnum Til að nota þjónustuvefinn þarftu nettengingu og vafra. Þú getur opnað vefinn í tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma. Til að skrá þig inn: Opnaðu Þjónustuvefinn eða heimasíðuna okkar. Skráðu þig inn með netfanginu og lykilorðinu sem þú notaðir við skráningu hjá Teya Ef þú ert ekki viss um hvaða netfang er tengt við Teya-aðganginn þinn, prófaðu að leita að staðfestingarpósti frá Teya í pósthólfinu þínu – það getur hjálpað þér að finna skráð netfang. Innskráning Þegar þú skráir inn í fyrsta skipti hjá Teya býrðu til lykilorð. Þú notar það til að skrá þig inn á vefinn. Ef þú hefur gleymt lykilorðinu: Farðu á innskráningarsíðuna Smelltu á Gleymt lykilorði? Sláðu inn netfangið þitt Þú færð sendann hlekk til að endurstilla lykilorð Ef þú færð ekki tölvupóstinn: Athugaðu í ruslpóstinum Staðfestu að rétt netfang var slegið inn Ef vandamálið heldur áfram, hafðu samband við okkur. Bæta við notanda og stjórna aðgangi Á þjónustuvefnum geturðu bætt við notendum til að fá aðgang að upplýsingum fyrirtækisins. Hver notandi fær sinn eigin aðgang og getur fengið mismunandi heimildir. Bæta við notanda: Skráðu þig inn á Þjónustuvefinn Opnaðu Stillingar Veldu Notendur og leyfi Smelltu á + Bæta við notanda. Sláðu inn netfang og veldu heimild. Þegar notanda er bætt við fær viðkomandi tölvupóst þar sem hann getur skráð sig inn. Þú sem eigandi getur einnig uppfært heimildir eða fjarlægt aðgang hvenær sem er. Opnaðu þessa grein fyrir nánari upplýsingar um notendur. Skipta milli fyrirtækja Ef þú rekur fleiri en eitt fyrirtæki eða staðsetningu undir sama Teya-aðgangi geturðu stjórnað þeim öllum í gegnum vefinn. Þegar þú skráir þig inn sérðu val um fyrirtæki vinstra megin á forsíðunni. Til að skipta milli fyrirtækja: Smelltu á nafnið á fyrirtækinu sem er þegar valið. Veldu það fyrirtæki sem þú vilt skoða. Þjónustuvefurinn Sala Í Söluyfirlitinu færðu daglega samantekt á rekstrinum, þar með talið: Fjöldi færslna Heildarsala Þjórfé Endurgreiðslur Ef þú rekur fleiri en eitt fyrirtæki geturðu skipt á milli þeirra til að fá heildaryfirsýn. Þú getur einnig borið saman tímabil og skoðað skiptingu eftir kortategundum. Færslur Í færsluhlutanum sérðu allar greiðslur sem hafa farið í gegnum posa, Teya Tap, greiðslubeiðnir og vefsíðu. Hver færsla sýnir stöðu, gjaldmiðil, tæki og uppruna.. Þú getur síað eftir: Tímabili Stöðu færslu Upphæð Tæki Síðustu 4 í kortanúmeri Til að hlaða niður færslum: Smelltu á Sækja hnappinn hægra megin á skjánum. Veldu skráartegund (CSV eða XLSX). Staðfestu og niðurhal hefst. Lærðu meira um færslur í þessari grein. Uppgjörsskýrslur Í flipanum Uppgjör, geturðu séð lykilupplýsingar fyrir hvert uppgjör, þar á meðal: Dagsetning uppgjörs Heildarsala Gjöld Greiðslu Stöðu uppgjörs Ef þú rekur mörg fyrirtæki geturðu síað eftir þeim. Með því að smella á ákveðið uppgjör færðu nánari yfirlit yfir tengdar færslur. Lærðu meira um uppgjör hérna. Sækja uppgjörsskýrslu Til að hlaða niður uppgjöri fyrir bókhald: Farðu í Uppgjör í valmyndinni vinstra megin. Veldu uppgjörið sem þú vilt sækja. Smelltu á Sækja hnappinn eftir í hægra horninu. Stillingar og fyrirtækjaupplýsingar Í stillingarhlutanum geturðu uppfært mikilvægar upplýsingar. Þar finnur þú: Fyrirtækjaupplýsingar: Upplýsingar reksturs og bankareikningur. Notendur og leyfi: Bæta við eða fjarlægja notendur og stilla aðgang. Reikningar: Aðgangur að öllum reikningum fyrirtækisins frá Teya. Samningar: Stillingar fyrir einstaka samninga, .t.d. tíðni uppgjöra og tilkynningar um endurkröfur. Breytingar eru háðar heimildum notandans. Vandamál við innskráningu Af hverju kemst ég ekki inn á þjónustuvefinn? Gakktu úr skugga um að þú notir rétt netfang. Ef þú ert ekki viss um hvaða netfang þú notaðir leitaðu í pósthólfinu eftir eldri póstum frá Teya. Smelltu á "Gleymt lykilorði?" til að endurstilla lykilorð. Ég fékk ekki póst til að endurstilla lykilorð. Athugaðu í rulspóstinn Sumar póstþjónustur gætu sjálfkrafa síað svona pósta Hafðu samband við þjónustuver ef vandamálið heldur áfram Stundum hjálpar að prófa annan vafra, hreinsa kökur (cookies) eða prófa huliðsglugga (incognito/private window) Var þessi grein gagnleg? Já Nei 0 af 0 fannst þessi grein gagnleg