Teya Iceland Posagreiðslur Fyrstu skrefin Myntval Uppfærð Febrúar 12, 2026 14:49 Hvað er myntval? Með myntval eða Dynamic Currency Conversion (DCC) getur þú boðið viðskiptavinum þínum að greiða fyrir vöru eða þjónustu í sínum gjaldmiðli. Myntval er virkt í öllum Teya posum. Að útskýra myntval fyrir viðskiptavinum þínum Þegar myntval er virkt geta erlendir viðskiptavinir þínir greitt fyrir vöru eða þjónustu í sínum gjaldmiðli. Þú stimplar inn þá upphæð sem þú vilt rukka og smellir á Áfram. Viðskiptavinur greiðir með kortinu sínu og fær möguleika á að bæta við þjórfé (ef það á við). Viðskiptavinur verður beðinn um að velja gjaldmiðil sem hann vill greiða í - sínum erlenda gjaldmiðli eða staðargjaldmiðli. Ef valið er erlendur gjaldmiðill verður færslan unnin og heimiluð á því gengi sem birtist á skjánum. Þegar greiðslan er samþykkt verður viðskiptavinur rukkaður í sínum gjaldmiðli. Neðst á kvittun korthafa er athugasemd um gjald fyrir gjaldeyrisbreytingu og upplýsingar sem staðfesta að þetta hafi verið myntvals færsla. Fylgir aukakostnaður fyrir mig sem seljanda að bjóða upp á myntval? Nei, það fylgir enginn kostnaður fyrir þig að bjóða upp á myntval og það hefur ekki áhrif á uppgjör þín. Þú munt alltaf fá greitt í sama gjaldmiðlinum, óháð vali viðskiptavinar. Greiðir viðskiptavinur aukalega með myntvali? Ef viðskiptavinur velur að greiða í sínum gjaldmiðli með myntvali er hann rukkaður eftir því gengi sem er birt í posanum. Ef hann velur að greiða í staðargjaldmiðli er gengið seinna ákveðið af banka viðskiptavinarins. Hver er ávinningur viðskiptavina að greiða með myntvali? Fyrir viðskiptavininn felur þetta í sér skýrleika, hann sér strax endanlega upphæð sem fer af kortinu í stað þess að bíða eftir gengisútreikningi bankans. Hvaða kortafélög styðja myntval? Myntval er í boði fyrir VISA og Mastercard kortafærslur. Er lágmarks færsluupphæð fyrir myntval? Já, myntval er sjálfkrafa boðið fyrir færslur hærri en: 733 ISK 5 EUR 199 CZK 1.872 HUF 5 GBP 38 DKK Hvaða gjaldmiðlar eru studdir? AED AUD CAD CHF CNY CZK EUR USD GBP HUF ILS ISK JPY SEK PLN NOK DKK TWD BRL KRW TRY SAR KWD RSD HKD MXN QAR Kröfur kortafélaga fyrir myntval Korthafi þarf að fá möguleika á að samþykkja eða hafna myntvali. Söluaðili má ekki taka ákvörðun fyrir korthafa. Myntval hefur ekki áhrif á rétt korthafa að krefjast endurgreiðslu skv. gildandi lögum eða öðrum reglum kortafélaga. Hvernig get ég tryggt að fyrirtækið mitt fylgi reglum kortafélaga Til að tryggja að fyrirtækið þitt fylgi reglum kortafélaga þarf að hafa eftirfarandi í huga: Viðskiptavinir mega ekki vera undir þrýstingi að velja myntval. Þeir ættu að vel upplýstir um gengi og hugsanlega álagningu áður en þeir taka ákvörðun. Ef viðskiptavinur greiðir með myntvali skal einnig bjóða honum kvittun úr posanum en ekki aðeins kassakerfinu (ef það á við). Kvittun úr kassakerfinu sýnir ekki endanlega upphæð í gjaldmiðli viðskiptavinar, sem getur valdið ruglingi um nákvæma upphæð sem var gjaldfærð. Teya tryggir að viðskiptavinir: Sjái skýrt gengið og öll gjöld á posanum áður en greiðsla er staðfest. Hafi kost á að fá útprentaða kvittun úr posa sem inniheldur yfirlýsingu um samþykki fyrir myntvali: "I have been offered a choice of currencies and have chosen to accept DCC and pay in [XXX] at the exchange rate offered by Teya." Ef þú vilt ekki bjóða upp á myntval fyrir viðskiptavini þína getur þú haft samband við þjónustuver Teya á netspjallinu, hjalp@teya.is eða í síma 560-1600. Var þessi grein gagnleg? Já Nei 0 af 0 fannst þessi grein gagnleg